SFO hlýtur Evrópu verðlaun

Samtök fólks með offitu (SFO) hafa hlotið viðurkenningu á World Obesity Day Europe Awards 2025, sem veitt eru af European Coalition for People Living with Obesity (ECPO) og European Association for the Study of Obesity (EASO). SFO var, ásamt Adipositas Verband Deutschland e.V. í Þýskalandi, sameiginlegur sigurvegari í flokki ECPO Best Patient or Public Engagement Programme Award í aðdraganda World Obesity Day 2025. Verðlaunin hlaut SFO fyrir öflugan viðburð sem samtökin skipulögðu á Íslandi þar sem lykilhagsmunaaðilar, heilbrigðisstarfsfólk og einstaklingar sem lifa með offitu komu saman til að efla vitund og samstarf. Jafnframt var kynnt íslensk útgáfa bókarinnar Mom, What is Obesity?. Viðurkenningin er mikill heiður fyrir SFO og staðfesting á mikilvægi fræðslu, samvinnu og bættrar þjónustu fyrir fólk sem lifir með offitu. SFO þakkar öllum sem komu að verkefninu og deilir þessum heiðri með ykkur.

Hér má lesa meira um verðlaunin á heimasíðu World Obesity Day Europe

Next
Next

Jólahugleiðingar SFO