Aðalfundur SFO haldinn í góðum anda

Nýir fulltrúar tóku sæti í stjórn félagsins og fráfarandi stjórnarmönnum voru þökkuð vel unnin störf.

Aðalfundur SFO fór nýlega fram í góðum anda með góðri þátttöku félagsmanna, bæði á staðnum og í gegnum Zoom.

Þátttaka og áhugi félagsmanna skiptir miklu máli fyrir starf félagsins og er mikilvægur grunnur fyrir áframhaldandi starf þess.

Breytingar á stjórn

Á fundinum létu tveir stjórnarmenn af störfum. Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar hætti í stjórn og Heiða Steinarsdóttir í varastjórn.

Félagið þakkar þeim kærlega fyrir vel unnin störf og mikilvægt framlag til félagsins.

Nýir aðilar til starfa

Stjórn SFO, Sólveig Sigurðardóttir, Þóra Kópsdóttir, Jórunn Kristín Fjeldsted, Hulda Heiðdal, Guðlaug Margrét Ingvadóttir, og Sigurður Ingi Kjartansson

Nýir aðilar tóku jafnframt sæti í stjórn.

Hulda Heiðdal kemur inn í stjórn og Hrafnhildur Valgarðsdóttir í varastjórn. Þær eru hjartanlega velkomnar til starfa og hlakkar stjórn félagsins til samstarfsins framundan.

Previous
Previous

Raunveruleg heilsa byrjar á virðingu - Málþing á vegum SFO á Alþjóðadegi offitu

Next
Next

SFO hlýtur Evrópu verðlaun