Raunveruleg heilsa byrjar á virðingu - Málþing á vegum SFO á Alþjóðadegi offitu

Þann 4. mars síðasliðin stóðu SFO – Samtök fólks með offitu fyrir opnu málþingi í tilefni Alþjóðadags offitu. Sem sjúklingasamtök leggur SFO áherslu á að efla þekkingu, stuðla að opnari umræðu og auka skilning á lífi fólks sem lifir með offitu. Viðburðurinn var opinn öllum og komu þar saman fagfólk og einstaklingar með eigin reynslu til að ræða hvernig virðing, samvinna og fræðsla geta stuðlað að bættari heilsu og auknum skilningi í samfélaginu.

Að staldra við og hugsa upp á nýtt

Vignir Sigurðsson

Barnalæknirinn Vignir Sigurðsson hóf málþingið með erindi sínu „Hvað ef? “.

Þar hvatti hann gesti til að staldra við og velta fyrir sér hvernig við sem samfélag hugsum um heilsu barna og fjölskyldna.

Erindi hans var hvatning til að skoða viðhorf og nálgun samfélagsins með opnum huga og spyrja nýrra spurninga. Með spurningunni „hvað ef? “bauð hann áheyrendum að hugsa hlutina upp á nýtt og velta fyrir sér hvernig samfélagið getur betur stutt við vellíðan barna og fjölskyldna.

Erindi hans var þannig hvatning til að endurskoða viðhorf og nálgun.

Og spyrja hvernig samfélagið geti betur stutt við vellíðan barna og fjölskyldna.

Samvinna skiptir sköpum

Gréta Jakobsdóttir

Næst tók til máls Gréta Jakobsdóttir, næringarfræðingur og formaður FFO – Félags fagfólks um offitu.

Í erindi sínu „Samvinna“lagði hún áherslu á mikilvægi þess að fagfólk úr ólíkum greinum vinni saman og eigi opið samtal við samfélagið til að finna betri leiðir til að styðja fólk sem lifir með offitu.

Raunveruleg heilsa byrjar á virðingu

Guðlaug Margrét Ingvadóttir

Að lokum flutti Guðlaug Margrét Ingvadóttir frá SFO erindið „Raunveruleg heilsa byrjar á virðingu – líf með offitu “. Þar deildi hún persónulegri reynslu sinni og minnti á að í allri umræðu um heilsu skipti virðing, hlustun og mannleg nálgun sköpum.

Þakkir

SFO vilja þakka öllum sem tóku þátt í málþinginu, bæði þeim sem mættu á staðinn og þeim sem fylgdust með á netinu. Fyrirlesararnir veittu dýrmæta innsýn og hvöttu til mikilvægs samtals um heilsu, virðingu og samvinnu.

Einnig vilja samtökin þakka ECPO fyrir stuðninginn sem gerði málþingið mögulegt.

Og sérstakar þakkir til félagsfólks og stjórnar SFO sem vann hörðum höndum til að gera þennan viðburð að raunveruleika.

Með aukinni þekkingu, samvinnu og opnu samtali er hægt að byggja samfélag þar sem fólk sem lifir með offitu mætir skilningi, virðingu og viðeigandi stuðningi.

Next
Next

Aðalfundur SFO haldinn í góðum anda