Guðlaug Ingvadóttir mætti á pallborð um offitu á Degi sjúkraþjálfunar

Guðlaug Ingvadóttir situr í stjórn SFO og tók þátt í áhugaverðu pallborði um offitu á Degi sjúkraþjálfunar 2026 sem haldinn var í Smárabíói þann 8. maí. Umræðunum stýrði Tryggvi Helgason læknir og með Guðlaugu sátu þau Guðlaugur Birgisson sjúkraþjálfari og Jórunn Edda Óskarsdóttir sálfræðingur. Í pallborðinu var rætt um hagnýt tengsl offitu við störf sjúkraþjálfara, meðal annars hreyfigetu, verki, vöðvarýrnun við lyfjameðferð, mikilvægi styrktarþjálfunar, aðgengi og jafnræði í þjónustu auk kerfisbundinna forvarna. Umræðurnar voru vel sóttar og vöktu mikla athygli meðal ráðstefnugesta. Dagur sjúkraþjálfunar er stærsta fagráðstefna sjúkraþjálfunar á Íslandi og gefur fagfólki tækifæri til að miðla þekkingu, efla tengsl og ræða þær áskoranir sem fagið stendur frammi fyrir. SFO er stolt af þátttöku Guðlaugar og mikilvægu framlagi hennar til umræðunnar.

Next
Next

Mikilvægt samtal um offitu og fordóma á Ljósmæðradeginum 2026