Mikilvægt samtal um offitu og fordóma á Ljósmæðradeginum 2026
SFO – Samtök fólks með offitu , þakkar Ljósmæðrafélagi Íslands kærlega fyrir boðið á Ljósmæðradaginn 2026 sem haldinn var á Hótel Selfossi þann 8. maí síðastliðinn.
Á ráðstefnunni fluttu Sólveig Sigurðardóttir, formaður SFO, og Hulda Heiðdal, ritari SFO, erindið „Offita, fordómar og mæðravernd – tölum saman“. Þar var fjallað um mikilvægi fræðslu um offitu sem langvinnan sjúkdóm og þau áhrif sem fordómar geta haft á fólk innan heilbrigðiskerfisins, ekki síst á meðgöngu og í mæðravernd.
Mikilvægt er að heilbrigðisstarfsfólk fái aukna fræðslu og þekkingu á offitu til að tryggja faglega, virðingarfulla og örugga þjónustu fyrir alla skjólstæðinga. Orðræða, viðmót og skilningur skipta máli og geta haft djúpstæð áhrif á upplifun fólks af heilbrigðiskerfinu og vilja þess til að leita sér þjónustu.
Við hjá SFO teljum afar mikilvægt að efla samtal og samvinnu milli fagstétta og hagsmunasamtaka. Með sameiginlegri fræðslu og opnum umræðum getum við unnið gegn fordómum og stuðlað að betri þjónustu og aukinni vellíðan fólks með offitu.
SFO þakkar aftur fyrir hlýjar móttökur og mikilvægt tækifæri til að taka þátt í þessari öflugu og fræðandi ráðstefnu.