„Mamma, hvað er offita?“ komin í dreifingu til grunnskóla landsins
Samtök Félags Offitu (SFO) hafa hafið dreifingu á barnabókinni „Mamma, hvað er offita?“ til grunnskóla landsins, þar sem hún verður aðgengileg í skólabókasöfnum.
Markmið verkefnisins er að efla fræðslu og skilning á offitu meðal barna og samfélagsins alls.
Fræðsla skiptir lykilmáli þegar kemur að því að draga úr fordómum og auka þekkingu á heilsu og vellíðan.
Með bókinni er leitast við að útskýra málefnið á einfaldan og aðgengilegan hátt fyrir yngri lesendur.
Þrátt fyrir að SFO sé lítið félag hefur það lagt ríka áherslu á að gera bókina aðgengilega öllum og er hún því gefin grunnskólum að kostnaðarlausu.
Bókin á uppruna sinn í Portúgal en hefur verið þýdd á fjölmörg tungumál og notið góðs orðspors víða um heim.
Með þessari dreifingu vonast SFO til að stuðla að aukinni vitund og jákvæðri umræðu um málefnið hér á landi.