SFO á ECO2026 í Istanbul

Dagana 12.–15. maí fór fram stór og glæsileg ráðstefna á vegum EASO (The European Association for the Study of Obesity) í Istanbul í Tyrklandi þar sem fólk alls staðar að úr Evrópu og víðar kom saman til að ræða málefni tengd offitu, rannsóknum, meðferð og mikilvægi samvinnu.

Samtök fólks með offitu voru að sjálfsögðu á staðnum sem hluti af samstarfi samtakanna við ECPO (The European Coalition for People living with Obesity) þar sem rödd fólks með offitu er í forgrunni. Sólveig Sigurðardóttir, formaður SFO, og Guðlaug Ingvadóttir, stjórnarmaður og gjaldkeri SFO eru meðlimir innan ECPO fyrir hönd SFO og taka þar virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi og hagsmunabaráttu fyrir fólk með offitu.

Sólveig hélt þrjá fyrirlestra á ráðstefnunni og Guðlaug tók þátt í vinnustofu á vegum EASO um klínískar leiðbeiningar í meðferð offitu og þátttöku sjúklinga. Guðlaug lýsti þátttökunni sem bæði lærdómsríkri og ótrúlega gefandi reynslu. Sérstaklega stóð upp úr hversu mikilvægt það er að fólk sem lifir með offitu fái að taka þátt í umræðunni og hafi raunverulega rödd þegar kemur að stefnumótun, meðferð og þjónustu.

Einnig tóku heilbrigðisstarfsmenn frá Heilsuskóla Barnaspítala Hringsins þátt í ráðstefnunni og héldu fyrirlestra. Þar á meðal voru Tryggvi Helgason barnalæknir, Anna Sigríður Ólafsdóttir næringarfræðingur og Sigrún Þorsteinsdóttir barnasálfræðingur. Svona samstarf skiptir gríðarlega miklu máli. Með góðu samstarfi hér heima við FFO (Félag fagfólks um offitu)og samstarfsaðila erlendis á borð við ECPO og EASO verður rödd fólks með offitu sterkari. Um leið skapast vettvangur til að deila reynslu, læra hvert af öðru og vinna saman að auknum skilningi og minni fordómum.

Það er líka einfaldlega ótrúlega gaman og gefandi að hitta fólk frá ólíkum löndum sem brennur fyrir sömu málum og finna hvað samstaðan er sterk. SFO vill að lokum færa ECPO kærar þakkir fyrir stuðninginn, hlýjar móttökur og fyrir að gera okkur kleift að taka þátt í þessari mikilvægu ráðstefnu og alþjóðlega samstarfi.


Next
Next

Guðlaug Ingvadóttir mætti á pallborð um offitu á Degi sjúkraþjálfunar