Stjórn SFO á fund velferðarnefndar Alþingis

Rödd fólks með offitu þarf að heyrast!

Í morgun mættu þrjár úr stjórn SFO á fund velferðarnefndar Alþingis til að fjalla um aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi 2026–2030.

Það er mikilvægt að SFO fái áheyrn þar sem ákvarðanir eru teknar sem hafa bein áhrif á líf fólks með offitu.

Reynsla og sjónarmið þeirra sem málið varðar verða að hafa áhrif á stefnumótun og framtíð þjónustunnar.

Fundurinn gekk vel, nefndarmenn sýndu málefninu mikinn áhuga og spurðu mikilvægra spurninga. Við þökkum nefndinni kærlega fyrir góðar móttökur, áhuga og vilja til að hlusta á okkar sjónarmið.

Við vonum að þetta samtal verði mikilvægt skref í átt að betri, aðgengilegri og virðingarfyllri heilbrigðisþjónustu fyrir fólk með offitu.

Við höldum áfram að tala fyrir fólk með offitu og vinna að raunverulegum breytingum.

Next
Next

Framtíð SFO-dagur í stefnumótun og fræðslu