Framtíð SFO-dagur í stefnumótun og fræðslu

Í gær, þann 26. september, hittust stjórn og fræðslunefnd SFO og áttu saman góðan og uppbyggilegan vinnudag. Dagurinn var nýttur til að horfa fram á veginn, skipuleggja fræðslu og móta verkefni fyrir SFO á komandi ári.

Við ræddum hvernig við getum haldið áfram að styrkja félagið, skapað fleiri tækifæri til fræðslu og stuðnings og gert SFO enn sýnilegra og öflugra. Það er mikill hugur í okkur og margar spennandi hugmyndir komu fram. Við erum bjartsýn á framtíðina og hlökkum til að deila með ykkur því sem fram undan er.

Saman byggjum við upp sterkara SFO, félag sem stendur með fólki sem lifir með offitu og aðstandendum þeirra

Next
Next

„Að vera séð sem manneskja“