SFO tók þátt í ECO2025 Malaga 11-14.mai
Rödd fólks með offitu fær að heyrast
Við hjá SFO erum stolt af þáttöku okkar í ECO2025 Malaga, einni stærstu ráðstefnu Evrópu er kemur að offitu, sem haldin var með yfir 4.000 þátttakendum hvaðanæva að úr heiminum. Þetta var einstakt tækifæri til að taka þátt í samtali um málefni sem varða okkur beint, einstaklingana sem lifa með offitu og sem talsmenn þeirra sem oft fá ekki rödd í umræðunni.
Fulltrúar SFO tóku virkan þátt á ráðstefnunni þar sem lögð var áhersla á mikilvægi þess að hlusta á reynslu fólks sem lifir með offitu í stefnumótun, meðferð og fræðslu. Við töluðum opinskátt um þann vanda sem stendur frammi fyrir fólki með offitu. Fordóma, fáfræði og skort á aðgengilegri og mannsæmandi heilbrigðisþjónustu. Það er mikilvægt að þessi mál séu rædd á alþjóðlegum vettvangi með virkri þátttöku þeirra sem málið varðar.
Sérstaklega viljum við koma að þátttöku Sveins Rúnars Sveinssonar, ungliðafulltrúa SFO hjá ECPO (European Coalition for People Living with Obesity). Sveinn talaði af mikilli einlægni og festu um mikilvægi fræðslu, stuðnings við ungt fólk sem lifir með offitu og nauðsyn þess að vinna gegn fordómum í samfélaginu. Rödd ungs fólks er lykilatriði í þessari baráttu, því þau eru framtíðin og eiga skilið að lifa lífi sínu án fordóma og mismununar.
Við viljum þakka ECPO innilega fyrir að gera okkur kleift að taka þátt í ráðstefnunni með sínum frábæra stuðningi. Það skiptir miklu máli að samtök sem byggja á reynslu fólks með offitu fái svigrúm og styrki til að taka þátt í stefnumótandi umræðu á evrópskum vettvangi. Einnig viljum við þakka EASO (European Association for the Study of Obesity) fyrir að bjóða okkur, fólki sem lifir með offitu að taka þátt á ráðstefnunni.
Við hjá SFO trúum því að samvinna sé lykillinn, samvinna fólks sem lifir með offitu, heilbrigðisstarfsfólks, fræðasamfélagsins, stefnumótenda og samfélagsins alls. Við verðum að tala saman, læra hvert af öðru og vinna saman að betra og bættara heilbrigðiskerfi. Með samstilltu átaki getum við minnkað fordóma, aukið skilning og byggt upp samfélag þar sem allir fá að njóta virðingar, óháð líkamsstærð.
Sjúkdómurinn offita spyr ekki um stærð.
Við hlökkum til að halda áfram þessari mikilvægu vinnu og tryggja að rödd fólks með offitu haldi áfram að heyrast, ekki aðeins á stórum vettvangi eins og ECO2025 Malaga, heldur líka í stefnumótun, heilbrigðisþjónustu og samfélagsumræðu á Íslandi.
Unnur Guðjónsdóttir, Sólveig Sigurðardóttir, Sveinn Hjörtur Guðfinsson og Sveinn Rúnar Sveinsson
Sólveig Sigurðardóttir, Rut Eiríksdóttir, Hanka Vrabcová, Gréta Jakobsdóttir, Judit Pettkó og Alison Lake.