Aðalfundur SFO 2026.
Á alþjóðadegi offitunar þann 4. mars n.k. verður aðalfundur SFO - Samtaka fólks með offitu haldinn klukkan 17:00-17:45 í sal hjá Heilsuklasanum, Bíldshöfða 9 (sama hús og heilsugæslan Höfða), 2. hæð. Fundurinn verður einnig í boði sem fjarfundur á Zoom og mun tengill verða sendur félagsfólki þegar nær dregur.
Ath. Mikilvægt er að skrá sig undir fullu nafni á fundinn á Zoom.
Kosið verður um 3 sæti í stjórn félagsins - tvo stjórnarmenn og einn varamann. Einungis skuldlaust félagsfólk getur boðið sig fram til stjórnarsetu. Tilkynna skal framboð skriflega til stjórnar fyrir 1. mars nk. á sfo@sfo.is.
Að lokinni hefðbundinni dagskrá aðalfundar hefst viðburður sem er öllum opinn og hefst hann kl. 18:00. Við munum fá áhugaverða fyrirlestra frá Grétu Jakobsdóttur næringarfræðingi, Vigni Sigurðssyni barnalækni og Guðlaugu Ingvadóttur stjórnarkonu og félaga í SFO.
Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi:
Kosning fundarstjóra og fundarritara
Skýrsla stjórnar og aðrar skýrslur
Reikningar lagðir fram til samþykktar
Lagabreytingar (Tillaga að lagabreytingu)
Ákvörðun félagsgjalds
Kosning til stjórnar
Kosning skoðunarmanns reikninga
Önnur mál
Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa allir skuldlausir félagar.